Yrkir kaupir lóð við Urriðaholtsstræti 3
22. september 2025
Yrkir hefur fest kaup á verslunar- og skrifstofulóð við Urriðaholtsstræti 3 í Garðabæ. Unnið er að framtíðarþróun lóðarinnar þar sem verslun Krónunnar mun opna ásamt nýju skrifstofuhúsnæði.
Urriðaholt er öflugt vaxtarsvæði þar sem byggt er á þeirri hugsjón að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Er það í samræmi við áherslur Yrkis og Krónunnar um umhverfisvæna starfsemi og sjálfbærni.
Kaupin eru háð fyrirvara um endanelgt deiliskipulag lóðarinnar.