Heimilisfang

Heimilisfang

Fréttir

Yrkir semur um nýjar höfuðstöðvar Festis við Urðarhvarf

22. september 2025

Yrkir hefur gengið frá samningi um uppbyggingu nýrra um 6 þúsund fermetra höfuðstöðva fyrir Festi við Urðarhvarf 10 í Kópavogi. Í nýja húsnæðinu verða um 4 þúsund fermetrar lagðir undir skrifstofur rekstrarfélaga samstæðunnar, Krónunnar, N1, ELKO, Lyfju, Yrki og móðurfélagsins Festi, auk tæplega 800 fermetra verslunarrýmis á jarðhæð og lageraðstöðu í kjallara. Reiknað er með að húsnæðið verði tilbúið innan þriggja ára.

Samhliða stækkun samstæðunnar undanfarin ár hefur Festi lagt áherslu á að sameina skrifstofur og stoðþjónustu félaganna undir eitt þak til að efla samstarf og lækka kostnað. Bæði ELKO og Lyfja hafa flutt skrifstofur sínar á síðastliðnum tveimur árum í núverandi höfuðstöðvar félagsins á Dalvegi í Kópavogi, sem hefur skilað góðum árangri.

Nýja húsnæðið mun bæta vinnuaðstöðu starfsfólks og verður hannað með það fyrir augum að geta aðlagast breytingum á starfsemi samstæðunnar, hvort sem er í stækkun eða minnkun. Það húsnæði sem er ekki nýtt verður leigt út til annarra aðila eftir aðstæðum hverju sinni. Urðarhvarfið er vel staðsett, ekki síst með nýrri tengingu við Arnarnesveginn.